Saturday, June 07, 2003

Jæja, nú er komið að því. Ég er að fara til Þýskalands með mörgum öðrum úr LTH. Reyndar þegar ég skrifa þetta þá er bara 5-6 klukkutímar þangað til ég fer.....en ég kem aftur. Bless elskurnar og sjáumst eftir 8 daga...!

Thursday, May 29, 2003

Buhu......aumingja ég.....ég er ekki virkur bloggar......mig langar svo til að fara að skæla.....! (Fyrir þá sem lesa þetta: Úr því að við lifum á þeim tímum að það er ekki hægt að heyra orð sem maður les í bókum eða á neti, þá er þetta hér á undan "sagt" í kaldhæðnistón).!!!

En úr því að það les enginn bloggið mitt þá skiptir það engu máli....!

En fyrir þá sem lentu inn á þessari síðu fyrir slysni eða þeim var boðin 100.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000 krónur fyrir að fara inn á hana þá...........ég er bara búinn að gleyma því sem ég ætlaði að segja eftir að hafa verið að skrifa allar þessar tölur.....en jæja....skiptum þá um umræðuefni. Einhver skal segja mér hversu stór upphæð þetta er í krónum, japönskum yen-um og rússnenskum rúblum.

Takk.

Saturday, May 24, 2003

Góða kveldið/dag öll sömul. Ég hef góða lífsreynslusögu að segja ykkur. Hér byrjar hún.....

Það var fyrir langa löngu (áður en Flemming fann upp Pensilínið) að nokkrir félagar úr LTH skyldu spila í álverinu í Straumsvík daginn 23.05.'03. Við þáðum boðið. 2 trommur, 1 horn, 2 trompetar, 2 flautur og 2 klarinett voru send á vit ævintýranna í Straumsvík að spila. Tilefnið var að spila á svokölluðum "tiltektar" dag í Straumsvík. Við þrömmuðum í skrúðgöngu og efldum báráttuandann í fólkinu til að taka saman. Það fór allt vel. Eftir það fundum við góðann graslund og okkur var boðið upp á drykkinn Magic og Prins Póló. 24 Magic og 30 Prins Póló voru innbyrð og að meðaltali fengu sumir 3 Magic og 3 Prins Póló. Eftir svo mikla innbyrði af Magic og Prins Póló voru sumir komnir í svokallaða "Hyper" vímu og tókum við (Eiríkur, Snorri, Ari, Erla, Björk og Oddný) þá ákvörðun að labba í Tónó, fá okkur smá göngutúr. Við lögðum af stað alsæl í vímu á Keflarvíkurveginn. Þið getið ímyndað ykkur hvernig er að labba við hliðina á Keflarvíkurveginum á meðan bílar keyra þar á 100. En allaveganna þá vorum við komin svolítið á leið og ég tók þá afdrífaríka ákvörðun. Ég hljóp út í hraunið og var viðskila við hópinn minn. Eftir stutta stund var ég kominn inn á Green-ið á einni af 18 holunum á golfvellinum á Hvaleyri. Ég hitti þar Gústa Levi's og Davíð Heimir, þar voru þeir eins plebbalegir eins og þeir gátu, með derhúfur, í golfskóm og golfbuxum og með golfsettið á bakinu með nýfágaðar kylfurnar. Ég sagði þeim að ég hafði týnst í hrauninu en hafði komist á leið aftur. Eftir þessi slepptu orð tóku óhöppin að elta mig. Er ég var búinn að taka tvö skref í átt að golfskálanum þá steig ég í golfholu og datt kylliflatur á Green-ið og gerði grasgrænu í sparibuxurnar. Ég stóð upp og hélt ótrauður áfram. Þið getið ímyndað ykkur einhvern strák með trompet í hendinni í rauðri úlpu, hlaupandi á golfvelli og allir að spá í hvaðan hann kom. En ég stytti mér leið yfir hraunkamb og þá var greinilega kríuhreiður nálægt og ein kría byrjaði að elta mig. Ég öskraði og hljóp eins og fætur toguðu og náði að stinga hana af. En er ég hélt áfram rann kalt vatn milli skins og hörunds. Ég uppgötvaði að ég væri á móti golfurunum og rétt í því skaut golfari af teig golfkúlu sem stefndi á mig en ég náði að forðast hana. Hélt ég áfram að labba og er ég var kominn frá golfvellinum þá byrjaði að rigna. Nei, aldeilis ekki. Ég hafði gengið í vatnsúðara í einum af görðunum. Blautur og kaldur hélt ég áfram, staðráðinn í því að komast í Tónlistarskólann. Hjá höfninni gaus upp versta fiskilykt og ég var nær kafnaður. Eftir smá risp á hendina þá komst ég að Tónó nær dauða en lífi. Ég safnaði smá kröftum og hélt á æfingu hjá The Big Bandits.

Þótt þetta kemur fyrir mig þá gerist þetta örugglega líka fyrir þig. Hafðu bara varann á og gættu þín á fljúgandi golfkúlum. Ég ætla að enda þessa lífsreynslusögu á smá texta.....

This is the end
my only friend the end......

Takk fyrir mig.....!

Monday, May 19, 2003

Er ekki lífið frábært....?

Friday, May 16, 2003

Ég hef nú ekki mikið að segja því ég blogga ekkert fyrr en ég er líklega búinn í prófunum. En Comments koma bráðum á bloggið mitt.....sjáumst...!

Monday, May 12, 2003

Hið eilífa stress sem fylgir lífinu. En það kemur í mörgu formi. Ég er t.d. að ganga í gegnum eitt. Prófin. Það er helvíti á jörðu. En ég samgleðst 10. bekkingum því þeirra kvöl í helvíti er lokið. En mín er eftir. Þetta lendir allt í einni flækju. En ég segi ekki meir...........

Sunday, May 11, 2003

Jæja, 22.02.'03 var merkisdagur. Þá bloggaði ég síðast. En það er margt mikilvægara en það. Kosningarnar voru að klárast og guði sé lof að Ingibjörg komst ekki á þing. Sjálfur er ég frekar sjálfstæðismaður en Samfylkingin en þrátt fyrir það, fór ég á flakk með Snorra gamla og Ingimari von Lennon á kosningakveldinu. Eina partýið sem við fundum var Samfylkingin í Hásölum. Við droppuðum þangað inn og hittum margt skemmtilegt fólk. T.d. Leifur Helga sem er snillingur, en þegar hann kennir er hann ekki alveg á námsefninu. Gerði saumakonu til margra ára, sem kennir við Víðistaðaskóla (ég held að hún hafi verið eitthvað kennd). Tryggvi góði trompetkall sem var í Lúðrasveit Hafnarfjarðar en stundar hana ekki lengur, en kemur samt alltaf á 17.júní til að spila með. En áfram hélt kosningasvaðilför okkar og boðið var upp á osta. Ég fékk mér venjulegan ost sem var í bútum. Mér sveið í góminn. Við kumpánarnir héldum áfram og kíktum á Shalimar, fengum okkur að drekka en áður en ég fékk mér Fanta, þá rann kalt vatn milli skins og hörunds. Ég hafði gleymt debetkortinu mínu á Bæjar-vídeó. Ég vona að það sé þar ennþá, ég kíki þangað bara eftir vinnu. En allavegann þá fórum við í Hellisgerði, og þar var ekki nokkur sála, nema kannski við. Snorri leiddi okkur í gegnum Gerði-Hellanna og kryfjaði upp sögu sína um unglingavinnuna sumar áður. Við rákumst á 2 stráka, sem voru eitthvað ekki með í heiminum og voru að leita að einhverju dópi sem þeir földu í Hellisgerði. Kvöldið endaði þannig að Ingimar múnaði á Snorra þannig að upphófst eltingarleikur niður Reykjarvíkurveginn en Snorri náði honum. Ingimar reif sig lausan og við hlupum í átt að Samfylkingarfundinum. Við hittum Kristján Helga þannig og við fylgdumst með sjónvarpsbílnum sem var fyrir utan fundinn. Ég sló Ingimar utan undir, Ingimar sló mig til baka og við fórum sinhvora leiðina heim. Góða nótt.